PIVOT
Jazzballett fyrir 3-15 ára
Pivot hentar vel fyrir þá sem hafa áhuga á að læra dans en vilja ekki keppa eða skuldbinda sig við keppnistengda hluti.
Pivot hentar einnig fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir Pirouette hóp.
Forskráning á haustönn 2026 (7. september - 6. desember) fyrir börn á aldrinum 3-15 ára. Forskráning stendur yfir til 31. júlí.
Danstímar fara fram í nýju húsnæði Danssporsins að Flugumýri 34.
Stundaskrá verður birt í ágúst - hópum verður skipt eftir aldri og/eða getu.
Forskráning hjálpar okkur að sjá þann fjölda sem hefur áhuga á að stunda dansnám hjá Danssporinu á komandi skólaári. Þannig getum við gert okkar besta að koma öllum áhugasömum að í hóp.
Við biðjum einungis þá sem eru ákveðnir í að æfa hjá Danssporinu um að forskrá sig.
Í ágúst verður hægt að ganga frá greiðslu. Þá verður hægt að nýta frístundastyrkinn eða skipta greiðslunni upp í allt að fjóra hluta.
Tímar Danssporsins og verðskrá
Haustönn 2026: 7. september - 6. desember
Almennir danstímar (Jazzballett)
Yngri danshópar (1×45 mín í viku) = 39.000,-
Eldri danshópar (2× 60 mín í viku) = 84.500,-
Möguleiki er á að valtímar 1x í viku verði í boði. Þeir tímar bætast við almennan hóp - ekki er hægt að æfa einungis í valtíma.
Í almennum danstímum Danssporsins er unnið með Jazz og Ballett æfingar í bland við aðra stíla.
Auk dansins læra nemendur líka hvernig á að vinna með öðrum, efla sjálfstraustið sitt og auka líkamsvitund.
Stundatafla og viðburðardagatal
Stundatafla og viðburðardagatal verður birt síðar